Leita í fréttum mbl.is

Hjúkrunarheimilið Fellsendi í Dölum hóf nú í vor eigin grænmetisræktun.

Í Morgunblaðínu í dag var sagt frá því að hjúkrunarheimilið Fellsendi í Dölum hafi í vor, fyrst íslenskra hjúkrunarheimila, hafið eigin grænmetisræktun.

Þetta er skemmtilegt framtak og kryddar örugglega tilveruna hjá þeim sem þar dvelja. Hins vegar er mér kunnugt um að annað hjúkrunarheimili hafi, hér áður fyrr, staðið fyrir ræktun á grænmeti. Það voru Klausturhólar á Kirkjubæjarklaustri. Veit ekki hvernig því er háttað nú.

Það er mikilvægt að viðhalda verkkunnáttu og þiggja það úr náttúrunni sem hægt er að nýta með viðráðanlegu vinnuframlagi. Því er slíkt frumkvæði mikilvæg hvatning til aukinnar sjálfbærni. Vonandi sprettur vel á Fellsenda í sumar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Dvalar og hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði hefur verið með sína grænmetisræktun í tugi ára.

En vonadi sprettur vel á Fellsenda

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 11.6.2009 kl. 09:27

2 Smámynd: ÞJÓÐARSÁLIN

Það er eiginlega stórmerkilegt, ef þetta er ekki gert víðar. Nú hvet ég hið ágæta starfslið Víðihlíðar í Grindavík að fara út ásamt þeim sem eru vel rólfærir og setja niður nokkar kartöflur á lóðinni. Sennilega hafa allir vistmenn sett niður kartöflur á sinni löngu ævi.

ÞJÓÐARSÁLIN, 11.6.2009 kl. 09:57

3 Smámynd: Birgit Raschhofer

Hjúkrunarheimilið Grund ræktar líka sitt grænmeti sjálf - í Hveragerði!

Birgit Raschhofer, 11.6.2009 kl. 13:40

4 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Flott átak hjá þeim á Fellsenda,enda hafa þau landslagið og fallegt umhverfi til þess,en ég hef grun um að þetta sé nú víðar gert,en ég gef þeim gott flaut í næstu ferð minn vestur í dali,nokkuð skemmtilegt hjá þér Lilja,að segja frá þessu,og gaman fyrir fólkið,gott mál,til hamingju,kær kveðja. konungur þjóðveganna.

Jóhannes Guðnason, 11.6.2009 kl. 16:16

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Já þetta er flott og gaman fyrir dvalarfólk að fá að vinna við einhvað þ.e. að taka þátt í áhugaverðum framtökum.

Valdimar Samúelsson, 12.6.2009 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Lilja Sigrún Jónsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Læknir áhugasöm um lýðheilsu og samfélagsmál

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband